Problem M
Kínahvísl
Languages
en
is
Bartosz og vinir hans eru í hvísluleik í leikskólanum sínum.
Hvísluleikurinn virkar þannig að $N$ manns sitja í hring. Einhver ákveðin manneskja (köllum hana $1$) hugsar um orð, og hvíslar því orði að manneskjunni sem situr vinstra megin við sig, manneskju $2$. Manneskja $2$ hvíslar síðan orðinu að manneskjunni sem situr vinstra megin við sig, manneskju $3$. Þetta gengur svo koll af kolli þangað til manneskjan sem situr hægra megin við manneskju $1$, köllum hana $N$, fær orð hvíslað til sín; á þeim tímapunkti segir manneskja $N$ upphátt hvaða orð hún heyrði, og sömuleiðis segir manneskja $1$ hvaða orð hún hugsaði um í byrjun.
Nema á þessum leikskóla, þá heyra allir krakkarnir orðið sem er hvíslað að þeim rétt, fyrir utan einn staf, sem er öðruvísi.
Inntak
Á fyrstu línu er orðið sem manneskja $1$ hugsaði um. Einnig kallað upphafsorðið. Á annari línu er orðið sem manneskja $N$ heyrði. Einnig kallað lokaorðið. Upphafsorðið og lokaorðið eru jafn löng. Vert er að taka fram að aðeins eru notaðir hinir 26 ensku lágstafir.
Úttak
Eina línu sem inniheldur minnsta mögulega $N$. Það er, fæsti fjöldi krakka sem þarf til að upphafsorðið verði að lokaorðinu með því að spila Hvísluleikinn.
Stigagjöf
Hópur |
Stig |
Takmarkanir |
1 |
10 |
Upphafsorðið og lokaorðið eru sama orðið |
2 |
20 |
Lengd upphafsorðsins og lokaorðsins eru bæði $\leq 100$ |
3 |
70 |
Lengd upphafsorðsins og lokaorðsins eru bæði $\leq 10^6$ |
Sample Input 1 | Sample Output 1 |
---|---|
tommi dommi |
2 |
Sample Input 2 | Sample Output 2 |
---|---|
pogger pepega |
6 |